11 júl. 2005Engir leikir eru í dag, mánudag, á EM U20 í Búlgaríu. Leikjahrinan hefst aftur á morgun og á miðvikudag lýkur riðlakeppninni. Síðan verður spilað um sæti í framhaldinu. Allar líkur eru á því að Ungverjar vinni "hinn riðilinn" eftir sigur á heimamönnum í gær. Í "okkar riðli" eru Pólverjar og Georgíumenn líklegastir, bæði lið taplaus. Íslendingar eiga eftir að leika gegn Írum á morgun og Finnum á miðvikudag. Finnar eru skæðir, unnu Slóvaka í gær eftir fremur slakan dag þar áður. Stóri leikur íslenska liðsins er gegn Írum. Á æfingu rétt áðan, frá 13.00-14.00 (10-11 að íslenskum tíma) fór Bojan vel í gegnum leikkerfi Íranna og síðan mun liðið skoða búta úr leiknum gegn Póllandi á myndbandi en sá leikur er gott dæmi um það hvernig íslenska liðið getur leikið best, og verst. Mikill hugur er í strákunum og þeir eru ákveðnir í því að láta slysið frá því í seinnihálfleik í gær aldrei endurtaka sig. Segja má að það hafi verið lán í óláni að þetta gerðist gegn svo hrikalega sterku liði, því enginn reiknaði með sigri Íslands. Allt þessu líkt fer inn á reynslubankann.