27 jún. 2005Tvö íslensk körfuknattleikslið munu taka þátt í Evrópukeppni félagsliða næsta vetur. Íslandsmeistarar og Keflavíkur munu taka þátt í Europe cup Challange eða áskorendabikarkeppni Evrópu og bikarmeistarar Hauka í kvennaflokki munu taka þátt í Euro cup women eða bikarkeppni Evrópu. Þetta verður þriðja árið í röð sem Keflavíkingar taka þátt í bikarkeppninni, en sú keppni fær nýtt nafn á næsta ára vegna skipulagsbreytinga í kjölfar samning FIBA-Europe og ULEB. Árangur Keflavíkinga í keppninni undanfarin ár hefur verið mjög góður og hefur vakið verðskuldaða athygli bæði innan lands og utan. Haukastelpurnar brjóta blað í sögunni þar sem liðið er fyrst íslenskra kvennaliða til að taka þátt í Evrópukeppni. Haukar munu leika í mið/norður riðli keppninnar og leika þrjá heimaleiki og þrjá útileiki. Dregið verður í riðla í München um næstu helgi.