4 jún. 2005Silfurverðlaun eru staðreynd hjá báðum íslensku körfuknattleiksliðunum á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Karlaliðið sigraði San Marínó nú rétt áðan 94-82. Leikurinn var erfiður, hiti mikill í höllinni og andstæðingarnir sýnd veiði en ekki gefinn. Þótt San Marínó sé lítið land þá er landslið þeirra sterkt, enda mega erlendir leikmenn sem búa í landinu leika með hér á þessu móti. Þess vegna er fjöldi Ítala í liði þeirra. Það var ekki fyrr en í lokafjórðungnum í leiknum að Ísland náði að hrista andstæðingana af sér. Fram af því hafði leikurinn verið í járnum, en Ísland hafði þó lengst af yfirhöndina. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 25-24 fyrir Ísland og 47-43 í hálfleik. Eftir þrjá fjórðunga var staðan 68-65. Það var síðan í stöðunni 72-72 að leiðir skyldu og íslenska liðið náði góðum leikkafla sem gerði útslagið. Leikmenn San Marínó stjórnuðu að mestu hraðanum í leiknum. San Marínó spiluðu rólegan bolta og nýttu skotklukkuna til fulls og komu í veg fyrir að íslensku strákarnir spiluðu sinn hraða bolta. Íslenska liðið fær silfurverðlaun sín afhent innan skamms, en úr körfuboltahöllinni fer liðið á frjálsíþróttavöllinn til að fylgjast með lokagreinunum þar. Þaðan fer rútan síðan kl.19:30 áleiðis til Barcelona. Íslensku landsliðin eru eru væntanleg heim um kl. 01:30 í nótt. [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002220_4_1[v-]Tölfræði leiksins[slod-].