3 jún. 2005Leikur Íslands og Kýpur í dag mun skera úr um það hvor þjóðin vinnur gullið í körfuknattleik karla hér á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma. Strákarnir fengu frí á æfingu í morgun og munu hvíla sig fram eftir degi, en þá verður fundur og léttur málsverður. Gríðarlegur hugur í er mönnum að standa sig og vinna Kýpur, en það hefur ekki tekist á undanförnum leikum. Í Kýpurliðinu eru tveir leikmenn fæddir í Bandaríkjunum, Darren Fowlks er annar þeirra. Hann lék 5 leiki með Grindavík í úrvalsdeildinni 1990. Kappinn er því kominn nokkuð til ára sinna en engu síður enn í fullu fjöri. Hinn heitir Jo Jo Garcia, hávaxinn leikmaður sem erfitt er að eiga við í teignum. Þá er aðalbakvörður Kýpur mjög góður, en hann leikur með Saloniki í grísku úrvalsdeildinni. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Kvennalandsliðið fékk óvænt tilboð um æfingaleik í dag, en sá leikur mun fara fram fyrir luktum dyrum. Það er fararstjórnin sem skorað hefur á stelpurnar. Þar verða þær Björg Hafsteinsdóttir og Guðbjörg Norðfjörð fremstar í flokki ásamt þjálfurum liðsins þeim Ívari Ásgrímssyni og Henning Henningssyni og fl. Ef ekki verður um frekari umfjöllum um leikinn að ræða hér á vefnum þýðir það að fararstjórnin hefur tapað. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Í gær brá kvennalandsliðið á það ráð að kasta KKÍ nælum til skólabarna í stúkunni og fá þau þannig til að styðja við bakið á íslenska liðinu. Fararstjórn karlaliðsins safnar nú saman öllum pinnum og nælum sem í boði eru og hyggst grípa til sama ráðs gegn Kýpur í dag. Þá er von á fjölda íslenskra íþróttamanna á leikinn til að styðja við bakið á strákunum. - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - Heldur betur hefur hitnað í veðri hér í Andorra frá því hópurinn kom hingað. Í byrjun vikunnar var skýjað og um 20 stiga hita. Í gær var sólskin og 33 stiga hiti og síðdegis kom hitaskúr. mt: Darryl Lewis Íslandi og Darren Fowlks Kýpur eiga það sameiginlegt að hafa báðir leikið með Grindavík í úrvalsdeildinni.