3 jún. 2005Íslenska karlalandsliðið tapaði fyrir Kýpur á Smáþjóðaleikunum í Andorra nú rétt áðan, 56-80. Slæm byrjun varð íslenka liðinu að falli, en liðið fór ekki að leika af eðlilegri getu fyrr en í þriðja fjórðungi. Fyrri hálfeikur er einfaldlega það slakasta sem sést hefur til landsliðsins í langan tíma. Liðið skoraði ekki stig fyrr en sjö mínútur voru liðnar af leiknum, sem hlýtur að vera met. Þá hafði Kýpur gert 16 stig í röð. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 7-21. Skorið í öðrum fjórðungi var 14-25 og staðan því 21-46 í hálfleik. Mest hefði Kýpur 27 stig forystu í leiknum. Íslenska liðið vaknaði loks til lífsins í þriðja fjórðungi, skoraði ma. tíu stig í röð og vann fjórðunginn 21-11 (42-57). Aftur hallaði undan fæti í lokafjorðungnum sem kýpur vann 14-23 og leikinn 56-80 eins og fyrr segir. Það ætlar að ganga illa að leggja Kýpur að velli á Smáþjóðaleikum. Ísland nær aldrei að sýna sitt rétta andlit gegn þeim. Vonandi verður þó hægt að kveða þennan draug niður hið fyrsta og ekki seinna en á næstu leikum. Hlynur Bæringsson var stiga- og frákastahæstur í íslenska liðinu með 15 stig og 12 fráköst. Magnús Þór Gunnarsson kom næstur með 14 stig. Ísland þarf að sigra San Marínó á morgun til að tryggja sér silfurverðlaun hér á leikunum. Sá leikur hefst kl. 13.00 að íslenskum tíma. [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002220_5_2[v-]Tölfræði leiksins[slod-].