1 jún. 2005Ísland vann Andorra með 30 stiga mun í karlaflokki á Smáþjóðaleikunum í Andorra í kvöld. Lokatölur voru 107-77. Ísland þurfti að hafa talsvert fyrir sigrinum, en heimamenn létu finna vel fyrir sér. Magnús Þór Gunnarsson, sem átti mjög góðan leik í kvöld, byrjaði leikinn með því að koma Íslandi í 5-0 eftir aðeins 20 sekúndan leik. Héldu þá margir að Ísland myndi hreinalega valta yfir Andorramenn, en annað koma á daginn. Heimamenn börðust eins og ljón og héldu sér inní leiknum þrátt fyrir slæma byrjun. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 29-27 fyrir Ísland og 48-39 í hálfleik. Það var síðan í þriðja fjórðungi að leiðir skyldu. Ísland skoraði þá 32-19 stigum heimamanna og staðan breyttist í 80-58. Ísland bætti enn í í lokafjórðungnum og lokatölur voru 107-77. Eins og fyrr sagði átti Magnús Þór Gunnarsson mjög góðan leik í kvöld. Hann skoraði 20 stig og gaf 4 stoðsendingar á 20 mínútum. Sex af átta þriggja stiga skotum hans rötuðu rétta leið og hann tók einnig 3 fráköst. Hlynur Bæringsson átti einnig góðan leik, en hann skoraði 22 stig og hirti 9 fráköst. Sigurður Þorvaldsson skoraði 16 stig og Helgi Magnússon 10 og hirti auk þess 4 fráköst. Fannar Ólafsson, sem lék aðeins í 15 mínútur, var með 5 stig og 5 fráköst. Auk þess skoruðu þeir Pavel Ermolinskij 8 stig, en tapaði 5 boltum, Páll Axel Vilbergsson 4 og 6 fáköst og Arnar Freyr Jónsson 3 og 3 stoðsendingar. Þá er ógetið nýliðanna sem léku sinn fyrsta landsleik í kvöld. Darryl Lewis átti góðan leik, skoraði 11 stig, hirti 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar, Sævar Harladsson lék 6 síðustu mínútur leiksins og komst vel frá þeim, skoraði 4 stig. Egill Jónasson skoraði 4 stig, tók 5 fráköst og varði 2 skot. Egill lék í 17 mínútur en fór út af með 5 villur. Áhorfendur, sem fjölmenntu í höllina hér í Andorra í kvöld, klöppuðu Agli lof í lófa þegar hann tróð viðstöðulaust sendingu frá einum samherja sinna. Tilþrif sem ekki sjást á hverjum degi. Þessi hávaxni leikmaður, sem er 217 sm á hæð, hélt sannarlega uppá sinn 21 afmælisdag á eftirminnilegan hátt. [v+]http://www.kki.is/leikvarp/tolfraedi.asp?Leikur=1500002220_2_3[v-]Tölfræði leiksins[slod-]. Íslenska liðið fékk mikinn stuðning frá öðrum íslenskum keppendum hér á leikunum, en þeir fjölmenntu á leikinn og hvöttu okkar menn óspart áfram. Ísland mætir Lúxemborg á morgun kl. 14:30 að íslenskum tíma, en á undan þeim leik mætast sömu þjóðir í kvennaflokki.