28 maí 2005Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari, hefur valið Sævar Haraldsson, Haukum, í landsliðið í stað Loga Gunnarssonar, Giessen. Lið Loga tryggði sér sæti í undanúrslitum þýsku deildarinnar með sigri á RheinEnergie Köln, en Giessen 46ers unnu fimmta leik liðanna (og hreinan úrslitaleik) 69-78. Þar með var ljóst að Logi kæmist ekki með til Andorra. Landslið karla er því þannig skipað í Andorra: Friðrik Stefánsson UMFN Egill Jónasson UMFN Páll Axel Vilbergsson UMFG Magnús Þór Gunnarsson Keflavík Hlynur Bæringsson Snæfell Sigurður Þorvaldsson Snæfell Pavel Ermolinskij Unicaja Malaga Darryl Lewis UMFG Fannar Ólafsson Ulm Helgi Már Magnússon Catawba College Arnar Freyr Jónsson Keflavík Sævar Haraldsson Haukar Fyrsti leikur Íslands í mótinu verður gegn Lúxemborg þriðjudaginn 31. maí.