23 maí 2005Ívar Ásgrímsson landsliðsþjálfari kvenna valdi tólf manna liðið sem taka mun þátt í Smóþjóðaleikunum í Andorra eftir þriðja leikinn gegn Englandi í gær. Liðið verður skipað eftirtöldum leikmönnum: Alda Leif Jónsdóttir ÍS Signý Hermannsdótti ÍS Þórunn Bjarnadóttir ÍS Birna Valgarðsdóttir Keflavík Rannveig Randversdóttir Keflavík Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík María Ben Erlingsdóttir Keflavík Ingibjörg Vilbergsdóttir Njarðvík Helga Jónasdóttir Njarðvík Helena Sverrisdóttir Haukar Helga Þorvaldsdóttir KR Hildur Sigurðardóttir Jamtland Liðið heldur utan á sunnudagsmorgun, en fyrsti leikur liðsins verður gegn Andorra þriðjudaginn 31. maí. mt: Birna Valgarðsdóttir er leikreyndust íslensku leikmannanna með 62 landsleiki. Á myndinni sést Birna skora tvö stig gegn Englandi á laugardaginn.