22 maí 2005Birna Valgarðsdóttir bætti tvö landsliðsmet í 19 stiga sigri íslenska kvennalandsliðsins á Englandi í Smáranum í gær. Birna sem var stigahæst í íslenska liðinu í leiknum með 20 stig á aðeins 26 mínútum, lék sinn 61. landsleik og bætti þar með landsleikjamet Önnu Maríu Sveinsdóttur. Með því að skora þrjár þriggja stiga körfur bætti hún einnig met Bjargar Hafsteinsdóttur yfir flestar þriggja stiga körfur skoraðar fyrir A-landsliðið. Birna hefur nú skorað 61 þriggja stiga körfur í þessum 61 leik eða nákvæmlega eina að meðaltali í leik. Birna hefur skorað sex þriggja stiga körfur (úr 12 skotum) í þessum tveimur vináttulandsleikjum við Englendinga en þriðji leikurinn fer fram í Njarðvík í dag. Birna Valgarðsdóttir varð auk þess aðeins önnur konan í sögunni til þess að skora 500 stig fyrir A-landsliðið en Birna hefur skorað 511 stig eftir leikinn í gær. Anna María Sveinsdóttir á enn stigametið en hún skoraði 759 stig í sínum 60 landsleikjum. Birna lék sinn fyrsta landsleik gegn Eistlandi í Keflavík 27. desember 1995 en frá 29. desember 1995 hefur hún spilað alla landsleiki sem Ísland hefur spilað. Leikurinn í gær var því 60. landsleikurinn í röð sem Birna spilar en hefur því ekki misst úr landsleik í rétt tæpan áratug. Flestir leikir fyrir íslenska kvennalandsliðið: Birna Valgarðsdóttir 61 Anna María Sveinsdóttir 60 Guðbjörg Norðfjörð 53 Helga Þorvaldsdóttir 50 Alda Leif Jónsdóttir 48 Erla Þorsteinsdóttir 48 Kristín Blöndal 45 Hildur Sigurðardóttir 42 Flestar þriggja stiga körfur fyrir íslenska kvennalandsliðið: Birna Valgarðsdóttir 61 Björg Hafsteinsdóttir 58 Erla Reynisdóttir 39 Anna María Sveinsdóttir 22 Alda Leif Jónsdóttir 21 Helga Þorvaldsdóttir 21 Guðbjörg Norðfjörð 20 Flest stig fyrir íslenska kvennalandsliðið: Anna María Sveinsdóttir 759 Birna Valgarðsdóttir 511 Erla Þorsteinsdóttir 377 Guðbjörg Norðfjörð 376 Linda Stefánsdóttir 293 Signý Hermannsdóttir 292 Helga Þorvaldsdóttir 277 Björg Hafsteinsdóttir 270 Erla Reynisdóttir 265 Alda Leif Jónsdóttir 248 Kristín Blöndal 247 Anna Dís Sveinbjörnsdóttir 225 Hildur Sigurðardóttir 218