18 maí 2005Golfmóti körfuboltamanna verður haldið föstudagurinn 10.júní kl. 13:30 á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu. Erindi í mótið eiga allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Leiknar verða 18 holur og keppt í höggleik án forgjafar og punktakeppni þar sem gefin hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Þetta er í áttunda sinn sem mótið fer fram og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt, voru á milli 50 og 60 í fyrra. Allir verða ræstir út í einu svo keppendur ljúki leik á svipuðum tíma og geti því átt góða stund í golfskála að leik loknum og rifjað upp gamlar stundir. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni mótsstjóra í síma 897-6279, netfang: rikhardur@sfs.is Skráningu lýkur kl. 22:00 fimmtudaginn 9.júní.