13 maí 2005Brynjar Þór Björnsson úr KR jafnaði unglingalandsleikjamet Gunnars Einarssonar frá 1993 á Norðurlandsmótinu í Stokkhólmi um síðustu helgi. Í úrslitaleiknum um bronsið lék Brynjar sinn 30. drengja og unglingalandsleik. Brynjar, sem lék með U-16 ára landsliðinu í fyrra, lék nú í fyrsta sinn með U-18 ára liðinu og hann mun því væntanlega slá met Gunnars í júlí nk. með U-18 ára liðinu í Evrópukeppninni. Helena Sverrisdóttir Haukum og María Ben Erlingsdóttir Keflavík eru leikjahæstu leikmenn U-16 ára landsliðs kvenna með 25 leiki hvor. Þær léku hisvegar með U-18 ára liðinu á NM um síðustu helgi. Helena hefur áður leikið með því liði og er þegar komin í 20. sæti á landsleikjalista U-18 liðsins með 9 leiki. Metið í þeim flokki á Erna Rún Magnúsdóttir, nú í ÍS, en hún lék 16 leiki með U-18 ára liðinu sem leikmaður UMFG. Pálína Gunnlaugsdóttir Haukum er einnig með 9 U-18 ára landsleiki, en þær Helena og Pálína munu væntanlega slá met Ernu í Evrópukeppninni í sumar.