13 maí 2005Brynjar Þór Björnsson unglingalandsliðsmaður úr KR hefur fengið boð frá NBA og FIBA að taka þátt í æfingabúðunum Basketball Without Borders á Ítalíu í sumar. Brynjar er fyrsti íslenski körfuknattleiksmaðurinn til að fá boð í þessar búðir. Basketball Without Borders búðirnar hafa verið starfræktar frá árinu 2001. Í búðirnar er eingöngu boðið efnilegustu leikmönnum Evrópu, en hliðstæðar búðir varða einnig í öðrum heimsálfum n.t.t. í Kína, S-Afríku og Argentínu í sumar. Auk NBA og FIBA kemur UNICEF eða Barnahjálp Sameinuðu sjóðanna að búðunum. Upphaflega voru búðirnar settar upp fyrir börn frá hinum stríðshrjáðu svæðum fyrrum Júgóslavíu. Í dag eru þessar búðir ætlaðar efnilegustu leikmönnum Evrópu. Alls taka 50 leikmenn frá 20 Evrópulöndum þátt í búðunum að þessu sinni. Þær verða haldnar í Treviso á Ítalíu 28.-31. ágúst.