3 maí 2005Fyrsta tvíþrautarkeppni formanna körfuknattleiksdeilda á vegum KKÍ var haldið í í tengslum við Ársþing KKÍ á Ísafirði föstudaginn 29. apríl sl. Tvíþrautin samanstendur af skriflegri og verklegri keppni þar sem þjálfarar þurftu annars vegar að svara 20 spurningum tengdum körfubolta á 3 mínútum og reyna fyrir sér í ýmsum skotþrautum. Í tengslum við keppnina voru hélt Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, erindi um dagatal körfuknattleiksviðburða á árinu. Tvíkeppnin var gífurlega spennandi og fór svo að Böðvar Guðjónsson formaður körfuknattleiksdeildar KR sigraði í keppninni. Böðvar var með nokkuð jafnt skor í baðum hlutum keppninnar. Í öðru sæti var Birgir Bragason, varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og í því þriðja Kristinn G. Kristinsson en Birgir fékk aukastig fyrir besta búninginn í verklegu keppninni.