3 maí 2005Snemma í fyrramálið heldur stór hópur körfuknattleiksfólks til Svíþjóðar til þátttöku í Norðurlandamóti unglinga. Mótið fer að venju fram í Stokkhólmi í umsjá Solna Vikings auk sænska sambandsins. Þátttaka Íslands í mótinu í ár er undir nokkuð óvenjulegum formerkjum, því Ísland hefur þrjá Norðurlandsmeistaratitla að verja. Ljóst er að erfitt verður að fylgja árangrinum frá því í fyrra eftir, en íslensku krakkarnir munu gera sitt best. Það má hins vegar ljóst vera að Ísland verður það land sem allar frændþjóðir okkar munu vilja leggja að velli í ár. Það eru unglingalandslið U-16 og U-18 ára karla og kvenna sem taka þátt í mótinu. Fyrstu leikir íslensku liðanna verða strax á morgun (miðvikudag), en mótinu líkur á sunnudag með úrslitaleikjum. Hægt er að nálgast niðurröðun leikjanna undir úrslit hér á vefnum. Reynt verður að setja inn fréttir af mótinu jafn óðum eða í lok hvers keppnisdags. Alls er 48 leikmenn, 5 fararstjórar, 4 þjálfarar, 4 dómarar, sjúkraþjálfari, fréttaritari og nokkrir foreldrar með í ferðinni. mt: Unglingalandsliðin sem taka þátt í Norðurlandamótinu að þessu sinni.