6 mar. 2005Helena Sverrisdóttir skilaði ótrúlegri tölfræði þegar hún og félagar hennar í unglingaflokki kvenna tryggðu sér bikarmeistaratitilinn í dag. Helena var með 18 stig, 22 fráköst, 18 stoðsendingar og 5 stolna bolta í 22 stiga sigri Haukaliðsins, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002113/21130401.htm [v-]91-69[slod-], en Keflavík hafði reyndar frumkvæðið framan af og var meðal með 11 stiga forskot, 33-22, þegar 16 mínútur voru liðnar af leiknum. Haukar unnu síðustu 4 mínútur hálfleiksins 20-4 og komust yfir 42-39 fyrir hlé og unnu síðan fjórða leikhlutann með 17 stigum (21-4) og leikinn því sannfærandi. Þetta var vissulega tímamótasigur fyrir Helenu Sverrisdóttur sem varð þarna bikarmeistari í sjötta sinn á ferlinum en hún hafði fram að þessum leik einungis unnið bikarmeistaratitla í flokkum upp fyrir sig þar á meðal í meistaraflokki í síðasta mánuði. Helena hafði orðið bikarmeistari í 9. flokki (2002), 10. flokki (2002, 2003), unglingaflokki (2004) og meistaraflokki (2005) en aldrei í þeim flokki sem 1988-árgangurinn var í á hverri stundu. Þann flokk hafði Keflavík alltaf unnið bikarmeistaratitilinn þar til í dag. Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst í Haukaliðinu með 25 stig, Helena var búinn að ná þrefaldri tvennu þegar tvær mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta og endaði með 18 stig, 22 fráköst, 18 stoðsendingar og 5 stolna bolta, Ösp Jóhannsdóttir nýtti 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum og skoraði 17 stig, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum og Ragnheiður Theódórsdóttir var með 13 stig. María Ben Erlingsdóttir skoraði mest fyrir Keflavík eða 17 stig en Bryndís Guðmundsdóttir var með 13 stig, 21 frákast, 6 stoðsendingar og 6 varin skot. Bára Bragadóttir skoraði 13 stig og Hrönn Þorgrímsdóttir var með 12 stig og 5 stoðsendingar.