29 des. 2004Íslenska kvennalandsliðið mætir Englandi í annað sinn á tveimur dögum þegar þjóðirnar mætast í Sheffield í kvöld. Íslenska liðið vann fimm stiga sigur, 67-72, í gær í miklum baráttuleik og má búast við spennandi slag í kvöld en spilað er í vöggu kvennakörfunnar í Englandi þar sem margfaldir meistarar Sheffield Hatters hafa aðsetur. Hatters-liðið hefur meðal annars orðið enskur meistari síðustu þrjú tímabil og alls tíu sinnum frá upphafi. Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari, var ánægður með leik íslenska liðsins í gær og þá sérstaklega karakter sem liðið sýndi á lokamínútum þegar íslensku stelpurnar unnu upp sex stiga forskot enska liðsins. Íslenska landsliðið hefur nú unnið 7 af 13 landsleikjum undir hans stjórn á árinu þar af tvo þeirra í fjórum landsleikjum gegn Englandi en þjóðirnar mætast nú í kvöld í fimmta sinn á árinu 2004. Fjórar stelpur í enska landsliðinu spila með Sheffield Hatters, þar af tvær sem byrjuðu inná í leiknum í gær og verða þær því á heimavelli í leiknum í kvöld en uppselt er á leikinn og má búast við mikillri stemningu í kvöld. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 16 ára stelpa úr Njarðvík kemur inn í liðið í kvöld í staðin fyrir Hildi Sigurðardóttur sem meiddist lítillega á æfingu í morgun og mun af þeim sökum hvíla í leiknum í kvöld. Í tólf manna hópnum í kvöld verða þar sem fjórar sextán ára stelpur og fer þar fremst Helena Sverrisdóttir sem var með 19 stig, 10 stoðsendingar og 7 stolna bolta í sigrinum í gær. Mynd: Hildur Sigurðardóttir, eini atvinnumaðurinn í íslenska liðinu, hvílir í kvöld vegna meiðsla sem hún hlaut á æfingu í morgun.