28 des. 2004Íslenska kvennalandsliðið stendur í stórræðum næstu daga en liðið er nú í æfingaferð í Englandi þar sem íslensku stelpurnar spila tvo opinbera landsleiki við heimastúlkur og svo einn æfingaleik við úrvalslið frá London. Fyrsti leikurinn er gegn landsliði Englands í Nottingham klukkan 18:30 í dag. Yfirmaður körfuboltamála í Englandi, Keith Mair, fagnar komu íslenska landsliðsins á heimasíðu sambandsins og telur leikina mjög mikilvæga fyrir sínar stelpur. "Þetta er mikilvægt og gott tækifæri fyrir okkar landsliðskonur að spila á heimavelli. Okkar áhagendur geta nú séð á hvaða lið mun koma fram fyrir okkar hönd á Samveldisleikunum 2006," sagði Mair á heimasíðu enska körfuboltasambandsins. Það er uppselt á báða landsleikina og því verður það góð reynsla fyrir íslensku stelpurnar að glíma við enska landsliðið dyggilega stutt af fjölmörgum enskum áhorfendum. Leikurinn í dag fer fram í Jesse Boot Wildcats-höllinni í Nottingham en það er einmitt heimavöllur Nottingham Wildcats liðsins sem á fjóra leikmenn í tólf manna hóp enska landsliðsins. Meðal þeirra er bakvörðurinn Jo Sarjant sem gerði íslensku stelpunum lífið leitt þegar þjóðirnar áttust við í þremur vináttulandsleikjum síðasta vor. Sarjant var þá með 17,0 stig, 8 fráköst og 5,3 stolna bolta að meðaltali í þremur landsleikjum þjóðanna. Bæði lið hafa einn leikmann sem spilar utan heimalandsins síns, Hildur Sigurðardóttir spilar með Jamtland í Svíþjóð og hjá enska liðinu spilar Rosie Mason í Ísrael. Athygli vekur þó að tvö efstu liðin í ensku kvennadeildinni, Rhondda Rebels (frá Wales) og Manchester Mystics eiga hvorugt leikmann í enska landsliðinu að þessu sinni og flestir leikmenn eða fjórir koma frá Nottingham Wildcats og Sheffield Hatters sem eru í 3. og 5. sæti ensku deildarinnar. Mynd: Ívar Ásgrímsson landsliðsþjálfari er mættur með íslensku landsliðskonurnar til Nottingham í Englandi.