28 des. 2004Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Englandi, 67-72, í Nottingham í kvöld eftir að hafa haft tveggja stiga forskot í hálfleik, 27-25. Íslenska liðið vann fjórða og síðasta leikhlutann 24-13 og þar með fyrri af tveimur landsleikjum þjóðanna en liðin mætast aftur á morgun og þá í Sheffield. Hin 16 ára Helena Sverrisdóttir var allt í öllu í íslenska liðinu með 19 stig, 10 stoðsendingar og 7 stolna bolta. Það munaði einnig mikið um framlög Keflvíkinganna tveggja, Rannveigar Randversdóttir og Maríu Ben Erlingsdóttur af bekknum en saman skoruðu þær 17 stig og nýttu 8 af 14 skotum sínum. Stig íslenska liðsins í leiknum: Helena Sverrisdóttir 19 (10 stoðs. 7 stolnir, 5 fráköst, 31 mín.) Birna Valgarðsdóttir 11 (5 fráköst, 4 stolnir, 29 mín.) Erla Þorsteinsdóttir 11 (7 fráköst, 32 mín.) Rannveig Randversdóttir 9 (18 mín.) Signý Hermannsdóttir 8 (6 fráköst, 2 varin skot, 28 mín.) María Ben Erlingsdóttir 8 (16 mín.) Svava Ósk Stefánsdóttir 2 (7 mín.) Hildur Sigurðardóttir 2 (16 mín.) Helga Jónasdóttir 2 (3 mín) Alda Leif Jónsdóttir (13 mín.) og Bryndís Guðmundsdóttir (2 mín.) léku einnig en náðu ekki að skora. Alda Leif fór útaf með 5 villur. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir hvíldi í þessum leik en kemur inn fyrir leikinn í Sheffield á morgun. Af tölfræði íslenska liðsins: 2ja stiga skotnýting: 24/56 (43%, 9/27 í fyrri, 15/29 í seinni). 3ja stiga skotnýting: 2/9 (22%, 0/4 í fyrri, 2/5 í seinni) Vítanýting: 22/28 (79%, 9/11 í fyrri, 13/17 í seinni) Fráköst: Ísland 38, England 42 Sóknarfráköst: Ísland 7, England 14 Tapaðir boltar: ísland 23, Englandi 24 Villur: Ísland 18, England 22 Stig af bekk: Ísland 21, England 7 Úrslit leikhlutanna: 1. leikhluti: Ísland 12-10 2. leikhluti: Jafnt 15-15 (Ísland 27-25) 3. leikhluti: England 29-21 (England 54-48) 4. leikhluti: Ísland 24-13 (Ísland 72-67) Rosie Mason var stigahæst í enska liðinu með 22 stig og 15 fráköst en Kristy Lavin gerði 14 stig og Jo Sarjant var með 13 stig. Mynd: Helena Sverrisdóttir var langatkvæðamest í íslenska landsliðinu í sigrinum á Englandi, skoraði 19 stig auk þess að gefa 10 stoðsendingar og stela 7 boltum.