20 des. 2004Körfuboltabúðirnar verða haldnar í íþróttahúsin Ásgarði, Garðabæ dagana 27., 28. og 29. desember. Aðalkennari er Ryan Leier sem hefur 12 ára þjálfarareynslu og hefur leikið körfubolta í 18 ár. Hann hefur m.a. leikið 3 ár sem atvinnumaður í Kanada og á Íslandi með ÍR og nú með Stjörnunni. Leikmenn úr meistaraflokki Stjörnunnar munu ásamt Ryan vera leiðbeinendur í körfuboltabúðunum. Um er að ræða 2 aldurshópa: 8, 9 og 10 ára og 11, 12 og 13 ára, bæði stelpur og strákar. Yngri aldurshópurinn er frá kl. 11:00-14:00 og sá eldri frá 14:30-17:30 alla dagana. Áhersla verður lögð á drippl og boltatækni, skot, sendingar og grunnatriði í vörn og sókn. Einnig verður farið í næringarfræði og hollt mataræði. Innifalið í verði eru bolir fyrir hvern iðkanda og pizza og gos einu sinni á meðan búðunum stendur. Skráið ykkur með því að hringja í Ryan í síma 849 0367 eða sendið tölvupóst á phatleier@hotmail.com. Einnig er hægt að senda tölvupóst á gunnar@lysing.is Gjald er kr. 5000,- á hvern þátttakanda og greiðist við upphaf körfuboltabúðanna. Upplýsingar um Superhoops körfuboltabúðir er hægt að fá á www.superhoops.ca Einungis þarf að mæta með íþróttaföt, íþróttaskó, vatnsflösku og góða skapið!