3 mar. 2004Halldór Karlsson leikmaður meistarflokks Njarðvíkur í Intersport-deildinni, var í gær dæmdur í eins leiks bann af aganefnd KKÍ. Halldór fékk brottrekstrarvilli í leik Snæfells og UMFN þann 26. febrúar sl. Halldór tekur bannið út í fyrsta leik Njarðvíkinga í úrslitakeppninni.