1 okt. 2003Annað kvöld, fimmtudagskvöld, fer fram úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins þegar KR og ÍR mætast í DHL-höllinni kl.19:15. Þá fara einnig fram í íþróttahúsi Njarðvíkur úrslitaleikir Reykjanesmótsins. Njarðvík og Grindavík munu leika um þriðja sætið klukkan 19:00 og Keflavík og Haukar um Reykjanesmeistaratitilinn klukkan 21:00. KR-ingar mæta með sitt sterkasta lið, utan þess sem Baldur Ólafsson er hvíldur og Herbert Arnarsson er enn meiddur. ÍR-ingar leika án Kevin Grandbergs sem er ekki orðinn löglegur, og án erlends leikmanns, eftir að Nate Pointdexter (fyrrum leikmaður Hamars) mætti ekki til landsins í gær og var samningnum við hann rift. Bæði liðin eru taplaus í Reykjavíkurmótinu, hafa unnið fjóra leiki hvort. Liðin mættust þrisvar á síðustu leiktíð þar sem þau unnu hvort sinn leikinn í deildinni, en ÍR-ingar slógu KR út í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar. Haukar hafa unnið alla sína leiki í Reykjanesmótinu og margir leikjanna í mótinu hafa verið hraðir og skemmtilegir. Miðaverð er aðeins 500 krónur og gildir miðinn á báða leikina. Eru stuðningsmenn liðanna hvattir til að mæta og hita upp fyrir komandi tímabil.