23 sep. 2003Pétur Guðmundsson verður með námskeið á vegum KKÍ fyrir framherja og miðherja (drengi og stúlkur) fædda á árunum 1983-1989 í íþróttahúsi Háskóla Íslands við Suðurgötu laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. september nk. Fyrri tíminn verður frá kl. 19-22 á laugardagskvöld og sá seinni frá kl. 10-13 á sunnudag. Námskeiðið er frítt og er þjálfurum boðið að senda þá leikmenn sem þeir telja að gætu nýtt sér þessa sérþjálfun. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst á Pétur í peturk@simnet.is eða í síma 554 - 0848 eða 895 -1058