9 sep. 2003Selfoss hefur þegið sæti Reynis S. í 1. deild karla, en Reynir S. óskaði nýlega eftir því að fá að leika í 2. deild í stað 1. deildar. Selfoss varð í neðsta sæti níu liða 1. deildar í fyrra og féll í 2. deild, en Reynir varð í þriðja sæti deildarinnar og komst í úrslitakeppnina. Það er því ljóst að 1. deildin verður skipuð tíu liðum í vetur eins og reglugerð gerir ráð fyrir, en í fyrra voru aðeins níu lið í deildinni. Það kom til af því að Skallagrímur tók sæti Þórs Ak. í Intersport-deildinni. Reynir S. mun leika í 2. deild karla í vetur.