8 mar. 2003Njarðvík og Keflavík urðu í dag bæði tvöfaldir bikarmeistarar í körfubolta en bikarúrslitaleikjahelgi KKÍ stendur nú yfir á Ásvöllum í Hafnarfirði. Njarðvík vann báða karlaflokka dagsins, 9. flokk og drengjaflokk en Keflavíkurstúlkur unnu bæði 9. flokk og unglingaflokk.Á morgun fara seinni fjórir úrslitaleikirnir fram. Keflavík varð bikarmeistari í 9. flokki kvenna eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001687/16870301.htm [v-]55-31[slod-] sigur á Njarðvík í fyrsta úrslitaleik dagsins. María Ben Erlingsdóttir var valinn maður leiksins en María skoraði 13 stig og tók 13 fráköst í leiknum. Félagi hennar Bryndís Guðmundsdóttir átti einnig prýðisleik, tók 16 fráköst og gaf 9 stoðsendingar auk 7 stiga. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir var atkvæðamest hjá Njarðvík með 15 stig, 12 fráköst og 5 stolna bolta. Njarðvík varð bikarmeistari í 9. flokki karla eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001684/16840401.htm [v-]58-51[slod-] sigur á Fjölni í öðrum úrslitaleik dagsins. Hjörtur Hrafn Einarsson var valinn maður leiksins en Hjörtur skoraði 25 stig, tók 20 fráköst og varði 5 skot í leiknum. Hörður Axel Vilhjálmsson var atkvæðamestur hjá Fjölni með 26 stig, 5 fráköst og 6 stolna bolta. Keflavík varð bikarmeistari í Unglingaflokki kvenna eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001685/16850301.htm [v-]57-54[slod-] sigur á heimastúlkum í Haukum í æsispennandi úrslitaleik. Svava Ósk Stefánsdóttir hjá Keflavík var valinn maður leiksins en Svava skoraði 20 stig, tók 9 fráköst, varði 7 skot, stal 9 boltum og gaf 6 stoðsendingar í leiknum. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest hjá Haukum með 27 stig, 9 fráköst og 8 stolna bolta. Þær María Ben Erlingsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir og Guðrún Harpa Guðmundsdóttir urðu allar tvöfaldir bikarmeistarar með Keflavík í dag og María Ben náði tvennu í báðum úrslitaleikjum og gerði samtals 30 stig og tók 27 fráköst í leikjunum tveimur. Njarðvík varð bikarmeistari í drengjaflokki eftir auðveldan [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001681/16810401.htm [v-]87-46[slod-] sigur á Fjölni í síðasta úrslitaleik dagsins. Ólafur Aron Ingvason var valinn maður leiksins en litlu munaði þar þó á honum og félaga hans Guðmundi Jónssyni. Ólafur Aron skoraði 23 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar í leiknum en Guðmundur var með 26 stig, 6 fráköst og 3 stolna bolta og 15 stiganna á fyrstu 9 mínútum síðari hálfleiks. Þá varði Egill Jónasson alls 12 skot frá Fjölnismönnum í leiknum. Allir byrjunarliðsmenn Njarðvíkur leiddu lið sitt í einhverjum tölfræðiþætti, Guðmundur Jónsson í stigum (26), Helgi Már Guðbjartsson í fráköstum (12), Ólafur Aron Ingvason í stoðsendingum (5), Egill Jónasson í vörðum skotum (12) og Jóhann Árni Ólafsson í stolnum boltum (4). Pálmar Ragnarsson og Haraldur Níelsson voru atkvæðamestir hjá Fjölni með 9 stig.