6 mar. 2003Mikil spenna er um hvaða lið tryggir sér 8. sætið í INTERSPORT-deildinni, en þrjú félög eiga möguleika á sætinu. Leikur Hauka og KR í kvöld er úrslitaleikur um 3. sætið. Haukar þurfa að sigra með 3 stiga mun til að tryggja sér sætið. Þrjú félög eiga möguleika á 8. sætinu, Snæfell, Breiðablik og Hamar. Vinni Snæfell sigur á Keflavík heldur liðið 8. sætinu, en tapi Snæfell eiga Breiðablik og Hamar möguleika. Sigri þau bæði í leikjum sínum þá tekur Breiðablik 8. sætið, en ef Breiðablik tapar og Hamar sigrar í leiknum gegn deildarmeisturum Grindavíkur, þá verða Hamarsmenn mótherjar Grindvíkinga í 1. umferð úrslitakeppninnar. Fleiri spennupunktar eru í deildinni, en ÍR og Tindastóll berjast um 6. sætið í deildinni. Reyndar getur Tindastóll náð 5. sætinu með sigri á ÍR, ef Njarðvík tapar fyrir Breiðabliki. Liðin tvö sem þegar eru fallin í 1. deild mætast í lokaumferðinni. Tapliðið í þeim leik verður neðst í deildinni. Leikir kvöldsins er þessir: Ásvellir 19.15 Haukar - KR Hveragerði 19.15 Hamar - UMFG Keflavík 19.15 Keflavík - Snæfell Njarðvík 19.15 UMFN - Breiðablik Seljaskóli 19.15 ÍR - Tindastóll Valsheimili 19.15 Valur - Skallagrímur