30 jan. 2002Eins og kunnugt er var dómstólakerfi KKÍ breytt á síðasta ársþingi. Hinn nýi dómstóll fékk fyrir skömmu sitt fyrsta mál til meðferðar og kvað upp úrskurð sinn í gær. Það var körfuknattleiksdeild Breiðabliks sem krafðist þess að leikur Breiðabliks C og Stjörnunnar B í 2. deild karla yrði dæmdur ógildur og Breiðbliki yrði dæmdur sigur í leiknum. Rökstuðningur Breiðabliks fyrir kröfu sinni var sá að Stjarnan hefði gerst brotleg við reglugerð um körfuknattleiksmót með því að nota leikmann sem var einn af 7 leikjahæstu leikmönnum A-liðs meistaraflokks félagsins. Bogi Hjálmtýsson, dómari í dómstól KKÍ, kvað upp dóminn. Dómsorð er að Stjarnan B telst hafa tapað leiknum gegn Breiðabliki C með stigatölunni 20-0 og greiði að auki 10. þúsund króna sekt til KKÍ. Ekki er ljóst hvort Stjarnan mun áfrýja þessum úrskurði til æðra dómsstigs.