15 jan. 2002KKÍ stóð fyrir árlegri óvissuferð íþróttafréttamanna um síðustu helgi. Í ferðinni er margt sér til gamans gert og í ár tók Einar Bollason, körfuboltafrömuðurinn hjá Íshestum við hópnum og bauð öllum á hestbak. Jafnframt er keppt í ýmsum þrautum og varð Kristján Jónsson frá mbl.is sigurvegari. Keppninni var þannig háttað að íþróttafréttamennirnir kepptu í vítaskotum, þriggja stiga skotum, sniðskotum og í Stinger og fór keppnin fram á Ásvöllum. Einnig var aukakeppni í Karokee í rútu Hópbíla, en margar rútur þeirra eru með Karokee kerfi, á meðan ekið var um Hafnarfjörð. Er óhætt að segja að einstakir íþróttafréttamenn hafi farið þar á kostum. Að lokum var tekið skriflegt próf í húsakynnum Íshesta þar sem íþróttafréttamen fengu svo í svanginn eftir erfiða og harða keppni. Kristján varð efstur í samanlagðri keppni og hlaut glæsileg verðlaun. Íþróttafréttamenn frá RÚV skipuðu sér í næstu þrjú sætin.