21 júl. 2001Íslensku stúlkurnar töpuðu fyrir Lúxemborg 33-74 í undanúrslitum á Promotion Cup á Kýpur í dag. Fyrstu tveir leikhlutarnir gengur þokkalega, Lúxemborgarstúlkurnar leiddu þó í hálfleik 16-26 en eftir það hrundi allt. Guðrún Guðmundsdóttir var stigahæst með 7 stig og þær Ólöf Helga Pálsdóttir og Jovana Stefánsdóttir skoruðu 6 en aðrar minna. Íslenska liðið mætir svo tapliði úr viðureign Kýpur og Skota á morgun í leik um þriðja sætið.