20 júl. 2001Íslenska stúlknalandsliðið sem tekur þátt í Promotion Cup á Kýpur tapaði rétt í þessu fyrir liði Skotlands, 51-55. Að sögn Péturs Hrafns Sigurðssonar fararstjóra íslenska liðsins var íslenska liðið mun betra, en kastaði frá sér sigrinum m.a. með 40 töpuðum boltum. Stigahæstar íslenska liðsins voru Guðrún Guðmundsdóttir með 10 stig og Ólöf Pálsdóttir með 9 stig. Meira síðar.