18 júl. 2001Unglingalandslið kvenna vann góðan sigur á Möltu í fyrsta leik sínum á Promotion cup (Evrópumóti minni ríkja) á Kýpur í dag 63-41. Staðan í hálfleik var 38-22. Erna Magnúsdóttir var stigahæst í leiknum með 14 stig, en þær Svava Stefánsdóttir og Lára Gunnarsdóttir komu næstar með 11 stig hvor. Íslenska liðið á frí morgun, þar sem Azerbaiztjan mætti ekki á mótið. Pétur Hrafn Kýpur