25 jún. 2001Ingi Þór Steinþórsson þjálfari 20 ára landsliðsins hefur valið 18 manna hóp sem æfa mun fram að Evrópukeppni ungmennlandsliða í Svíþjóð í júlí. Tveir leikmenn úr A-landsliðshópnum eru í ungmennaliðinu, þeir Jón Arnór Stefánsson KR og Hreggviður Magnússon ÍR. Hópurinn er skipaður eftirtöldum leikmönnum: Arnar Smárason, UMFN Axel Kárason, Tindastól Erlendur Ottesen, ÍA Helgi Freyr Margeirsson, Tindastól Helgi Már Magnússon, KR Helgi Rafn Viggósson, Tindastól Hjalti Kristinsson, KR Hjalti Vilhjálmsson, Fjölni Hlynur Bæringsson, Skallagrím Hreggviður Magnússon, ÍR Jakob Örn Sigurðarson, KR Jón Arnór  Stefánsson, KR Magnús Sigurðsson, Þór Þorlákshöfn Níels Páll Dungal, KR Ólafur Sigurðsson, ÍR Ómar Sævarsson, Breiðabliki Valdimar Helgason, KR   Liðið æfði á Sauðárkróki um helgina og þar var tekið vel á því og í vikunni hefjast nánast daglegar æfingar fram að ferð. Brottför til Svíþjóðar er 9.júlí og heimkoma 16. júlí. Leikið verður gegn Rússlandi 11. Spáni 12. Eistlandi 13. Svíþjóð 14. og Danmörku 15.  Tvö efstu liðin komast áfram í 12 liða úrslitakeppni Evrópuliða ´82 og yngri. Tveir leikmenn liðsins eiga við meiðsl að stríða. Hlynur Bæringsson snéri sig á ökkla og á þessari stund er tvísýnt um að hann verði orðinn leikfær fyrir mótið. Þá er Hreggviður Magnússon meiddur á fingri og verður frá af þeim sökum í nokkra daga. mt: Ingi Þór Steinþórsson þjálfari 20 ára landsliðsins.