4 feb. 2001Hamar tryggði sér í fyrsta sinn sæti í úrslitum bikarkeppni KKÍ og Doritos með útisigri á Keflvíkingum 94-99 eftir framlengingu. Gunnar Einarsson var stigahæstur heimamanna með 23 stig, Calvin Davis skoraði 22 og Guðjón Skúlason var með 15 stig. Stigahæstir Hamarsmanna voru Chris Dade, með 27 stig eftir að hafa skorað sex stig í síðasta leik, Pétur Ingvarsson með 25 stig og auk þess þrír leikmenn sem voru með 12 stig hver. Í úrslitum mæta þeir ÍR sem slógu út bikarmeistara Grindvíkinga á útivelli með 21 stigs mun, 76-97. Stigahæstir Grindvíkinga voru Kevin Daley með 24 stig, en hann var einnig með 11 fráköst, sex stoðsendingar og fimm stolna bolta, og Páll Axel Vilbergsson með 15 stig. Eiríkur Önundarson fór fyrir liði ÍR, skoraði 27 stig og stal boltanum sjö sinnum. Hreggviður Magnússon skoraði 22 stig og gaf sex stoðsendingar og Cedrick Holmes skoraði 17 stig, tók 14 fráköst og varði þrjú skot. Í kvennaflokki verða það Keflavík og KR sem munu mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar að þessu sinni. Keflavík vann KFÍ á heimavelli, 66-56, þar sem Brooke Schwartz leiddi Keflvíkinga til sigurs; skoraði 28 stig, tók sjö fráköst og stal boltanum fjórum sinnum. Jessica Gaspar var stigahæst í liði KFÍ með 17 stig, en hún tók auk þess sjö fráköst og stal boltanum jafnoft. Stefanía Ásmundsdóttir fór mikinn í fráköstunum, tók 16 slík og þar af sjö í sókn. KR sigraði ÍS, 72-47, í KR húsinu. Hanna Kjartansdóttir og Kristín Jónsdóttir skoruðu hvor um sig 17stig og Hildur Sigurðardóttir skoraði 16, auk þess sem hún hirti tíu fráköst. Gréta María Grétarsdóttir skoraði níu stig fyrir heimaliðið og nældi sér í 11 fráköst. Hafdís Helgadóttir var stigahæst ÍS stúlkna með 10 stig en næst kom Cecilia Larsson með níu stig.
Hamar mætir ÍR í úrslitum Doritos bikarkeppninnar