22 sep. 1999Lið Reykjanesbæjar er komið í riðlakeppni Korac cup, Evrópukeppni félagsliða, en síðari leikurinn gegn London Leopards fór fram í London í gærkvöld. Leopards sigruðu í leiknum, 80-78, en það dugði skammt eftir 36 stiga tapið í Keflavík í fyrri viku. Purnell Perry var stigahæstur Reyknesinga í leiknum með 25 stig, Teitur Örlygsson gerði 12 og Guðjón Skúlason gerði 11. Aðrir minna. ÍRB er nú komið í riðlakeppnina sem fram fer á næstu tveimur mánuðum. Með ÍRB í riðli er Nancy frá Frakklandi og annað hvort finnst eða þýskt lið og svissneskt lið eða portúgalskt lið. Fyrsti leikurinn í riðlakeppninni verður miðvikudaginn 6. október.
ÍRB áfram þrátt fyrir tap í London