Þjálfarastig 2
KKÍ þjálfari 2 – Þjálfun unglinga
KKÍ þjálfari 2 er annar hluti af þremur af þjálfarmenntun í Menntakerfi KKÍ og er hluti af þjálfaramenntun ÍSÍ. Námskeiðið er 80 kennslustundir og skiptist upp í þrjá hluta KKÍ 2a, KKÍ 2b og KKÍ 2c og hefur fræðslustjóri KKÍ yfirumsjón með náminu í samstarfi við leiðbeinendur og kennara námskeiðsins. Á námskeiðinu sjá þjálfarar leikmenn framkvæma æfingar sem eru kenndar af kennara.
Að loknu námi öðlast þátttakendur þjálfaragráðuna KKÍ þjálfari 2 sem veitir þeim leyfi til að þjálfa á grunnskólastigi, 10. flokk og yngri, sem og aðstoðarþjálfari í öllum yngri flokkum.
Uppbygging námskeiðsins KKÍ þjálfari 2
KKÍ Þjálfari 2A
KKÍ þjálfari 2A er helgarnámskeið sem er meðal annars kennt af þjálfara frá FIBA. Námskeiðið verður einnig hægt að nýta sem endurmenntunarnámskeið fyrir þá þjálfara sem hafa lokið KKÍ þjálfara 3. Námskeið er einnig opið fyrir þá þjálfara sem eru ekki að sækja sér stig hjá KKÍ. Allir þeir sem sækja námskeiðið og ætla sér að sækja stig 2A þurfa að standast próf í lok námskeiðs. Námskeiðið er 20 kennslustundir eða 13,5 klukkutímar.
Föstudagur
17:00-17:10 Fundur með þjálfurum sem taka námskeiðið sem stig 2.a eða endurmenntun
17:10-18:40 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
18:50-20:10 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
Laugardagur
09:00-10:30 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
10:40-12:10 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
12:10-13:00 Matarhlé
13:00-14:30 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
14:40-16:10 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
Sunnudagur
09:00-10:30 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
10:40-12:10 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
12:10-13:00 Matarhlé
13:00-14:30 Dagskrá breytileg og unnin í samstarfi við FIBA
14:40-15:00 Bóklegt próf (20%)
KKÍ Þjálfari 2B
Allur 2B hlutinn er tekin í fjarnámi. KKÍ þjálfari 2B er skipt upp í sex hluta. Einkunnagjöf námskeiðs er staðið/fall.
- Vettvangsnám.
- Heimsókn til þjálfara þar sem fylgst er með æfingum hjá tveimur þjálfurum í meistaraflokki og vinna verkefni með samanburð á aðferðum þjálfara.
- Þjálfarafyrirlestur á netinu þar sem unnið er verkefni uppúr fyrirlestri.
- Leikgreining er verkefni þar sem þjálfari horfir á leik og greinir helstu atriði. Þjálfarar þurfa að hafa lokið öll verkefni í 2B á því keppnistímabil sem námið er tekið.
- Ítarlegt reglupróf er verkefni þar sem þjálfarar verða að kynna sér leikreglurnar ítarlegar en í 1B og svara regluprófi.
- Úrdráttur úr grein er verkefni þar sem þjálfarar fá senda grein og þurfa að gera vandaðan úrdrátt úr.
Vettvangsnám
Í vettvangsnámi (þjálfaraskóli) fær þjálfari leiðsögn frá KKÍ þjálfara 3 í raunverulegum aðstæðum. Leiðbeinandi skipaður af fræðslustjóra heimsækir þjálfara á æfingar í sínu félagi. Miðað er við að leiðbeinandi fylgist með 3-4 æfingum þar sem þjálfari er að þjálfa sinn flokk og eftir æfingu fær þjálfari endurgjöf frá leiðbeinanda sínum. Hægt er að taka þjálfaraskóla KKÍ þegar þjálfara KKÍ 1 er lokið, möguleiki er að taka skólann hvenær sem er á meðan á tímabili stendur og þjálfari er með skipulagðar æfingar. Þjálfaraskóli KKÍ gildir sem 12 kennslustundir í þjálfara 2B og má einnig nota sem hluta af endurmenntun. Fræðslustjóri þarf að samþykkja leiðbeinanda sem þarf að vera með þjálfara KKÍ 3 og a.m.k 5 ára starfsreynslu sem þjálfari.
Markmið með vettvangsnámi
- Að þjálfarar fái leiðsögn í raunverulegum kringumstæðum
- Auka sjálfstæð vinnubrögð þjálfara
Verkefnalýsing
- Þjálfari þjálfar sitt lið og fær tilsögn frá reyndum þjálfara
- Skila þarf tímaseðlum af öllum æfingum
- Leiðbeinandi skilar inn umsögn um þjálfara
Heimsókn til þjálfara
Verkefnið felur í sér að farið er á eina til tvær æfingar hjá tveimur reynslumiklum þjálfurum sem þjálfa meistaraflokkslið eða landslið. Unnið er verkefni út frá heimsóknunum, þar sem uppsetning æfinga er skoðuð og ólíkir þjálfaraðferðir bornar saman.
Markmið með heimsókn til þjálfara
- Fá innsýn í æfingar hjá liðum á hæsta mögulega stigi hér á landi
- Fá innsýn í þjálfun mismunandi þjálfara
- Fá innsýn í þjálfun annarra liða
Verkefnalýsing
- Forsíða, nafn þjálfara, nafn liða og þjálfara sem heimsótt eru
- Stutt kynning á þjálfurum og liðum
- Meginmál þar sem settur er upp tímaseðill af æfingum
- Umræður, draga saman og segja frá í stuttu máli
- Lengd: Lágmark fjórar síður, hámark átta síður.
- Letur: Times New Roman/Arial,
- Letur stærð: 12 í texta með 1,5 línubil, Headlines 16 og 14, annar texti 10 "footnotes"
- Myndir: u.þ.b. 7x5 sentimetrar hálfur völlur og heill völlur 7x10 sentimetrar
- Undirskrift frá þjálfara sem staðfestir heimsókn
Þjálfarafyrirlestur á netinu
Í KKÍ þjálfari 2B verkefni þarf þjálfari að horfa á fyrirlestra á netinu eða á DVD. Fyrirlestur þarf að vera 60-90 mínútur og getur þjálfari valið úr útvöldum fyrirlestrum, möguleiki er að fá undanþágu og sækja um að gera verkefni um annan fyrirlestur ef þess er óskað með leyfi frá fræðslustjóra. Upp úr fyrirlestri þarf þjálfari að vinna verkefni, glósur, teikna myndir o.s.frv.
Markmið með þjálfarafyrirlestri á netinu
- Kynna möguleika á sjálfsmenntun á netinu eða með DVD myndböndum
- Auka sjálfstæð vinnubrögð þjálfara
Verkefnalýsing
- Forsíða, nafn fyrirlesturs og fyrirlesara
- Kynning á fyrirlesara og efninu
- Meginmál þar sem innihald fyrirlesturs kemur fram í orði og myndum
- Umræður, draga saman og segja frá í stuttumáli
- Lengd: ekki lengri en 10 síður
- Letur: Times New Roman/Arial,
- Letur stærð: 12 í texta með 1,5 línubil, Headlines 16 og 14, annar texti 10 "footnotes"
- Myndir: u.þ.b. 7x5 sentimetrar hálfur völlur, og heill völlur 7x10 sentimetrar
- Heimild: þarf að koma fram hvar sé hægt að nálgast fyrirlestur
Leikgreining
Í þessu verkefni er verið að fá þjálfara til að horfa á leiki frekar með gleraugum þjálfarans í stað áhorfandans. Þjálfari greinir helstu einkenni liðs, finnur út helstu veikleika og styrkleika.
Markmið með leikgreiningu
- Æfa þjálfara í að horfa á leiki sem þjálfari frekar en áhorfandi.
- Finna veikleika og styrkleika.
- Auka sjálfstæð vinnubrögð þjálfara.
Verkefnalýsing
- Forsíða, leikur og lið sem horft er á
- Hver er hugmyndafræði liðs?
- Helstu styrkleikar?
- Helstu veikleikar?
- Sterkustu leikmenn, hvað vilja þeir helst gera og ekki gera?
- Lengd: hámark 3 síður.
- Letur: Times New Roman/Arial,
- Letur stærð: 12 í texta með 1,5 línubil, Headlines 16 og 14, annar texti 10 "footnotes".
- Myndir: u.þ.b. 7x5 sentimetrar hálfur völlur, og heill völlur 7x10 sentimetrar.
Ítarlegt reglupróf
Í þessu verkefni kynna þjálfarar sér reglutúlkanir FIBA til að öðlast dýpri skilning á leikreglunum og beitingu þeirra. Þjálfarar taka próf úr reglutúlkununum og þurfa að ná minnst 85% réttu.
Markmið með ítarlegu regluprófi
- Fá betri og dýpri skilning á leikreglum og beitingu þeirra
- Vera betur í stakk búin að þjálfa leikinn á hærra stigi
Úrdráttur úr grein
Í þessu verkefni les þjálfari grein úr International Journal of Sports Science & Coaching og vinnur samantekt úr henni. Þjálfari segir frá greininni með sínum orðum, setjið verkefnið snyrtilega upp, lengd um 1-3 bls.
KKÍ Þjálfari 2C
KKÍ þjálfari 2C er helgarnámskeið sem er kennt af tveimur eða fleiri reynslumiklum þjálfurum. Námskeiðið er samtals 20 kennslustundir. Áhersla er lögð á þjálfun barna 17 ára og yngri, einstaklingsþjálfun og hvernig skuli byggja upp leikmenn og sérhæfa þá eftir leikstöðum. Farið er í tveggja og þriggja manna spil, mikilvægi á að hita upp og gera styrktar- og þolæfingar sérhæft fyrir körfubolta.
Föstudagur
17:00-17:10 Setning
17:10-18:30 Skipulag þjálfunar, áætlunargerð einstaklinga Bóklegt
18:40-20:00 Líkamleg þjálfun (þol og styrkur) Bóklegt
Laugardagur
09:00-10:20 Líkamleg þjálfun, meiðslafyrirbyggjandi æfingar og upphitun Verklegt
10:30-11:50 Einstaklingsþjálfun leikstjórnanda Verklegt
11:50-12:30 Matarhlé
12:30-13:50 Einstaklingsþjálfun, miðherja Verklegt
14:00-15:20 Einstaklingsþjálfun, skotbakvarðar/skotframherja Verklegt
15:30-16:50 Liðsvörn (framhald) Verklegt
Sunnudagur
09:00-10:20 Þriggja manna spil, hindranir frá bolta (e. Screen away) Verklegt
10:30-11:50 Tveggja manna spil 2 á 2 bolta hindrun (e. Pick & Roll) Verklegt
11:50-12:30 Matarhlé
12:30-13:10 Skriflegt lokapróf KKÍ Þjálfari 2 (20%) Bóklegt Próf
13:20-14:40 Sóknar jafnvægi Verklegt
14:50-15:30 Útskrift úr KKÍ þjálfara 2
Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira