Bæði KR og Grindavík eru upp við vegg í undanúrslitaeinvígum Epsondeildarinnar í kvöld líkt og í síðasta leik og tap þýðir að bæði lið eru úr leik. Ekkert lið í sögu úrslitakeppninnar hefur unnið einvígi þar sem það hefur lent 0-2 undir og gætu því bæði þessi lið brotið blað í sögunni en þetta er í 10. og 11. skipti sem lið lenda í þessarri óskemmtilegu aðstöðu. Hér á eftir fara þau einvígi í sögu úrslitakeppninnar 1984-2001 þar sem annað liðið hefur komist í 2-0 í einvígi þar sem þarf að vinna þrjá leiki. 1990 Úrsliteinvígi: KR-Keflavík 2-0 varð 3-0 eftir 80-73 sigur KR í þriðja leiknum. (1) 1993 Úrsliteinvígi: Keflavík-Haukar 2-0 varð 3-0 eftir 108-89 sigur Keflavíkur í þriðja leiknum. (2) 1995 Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-Skallagrímur 2-0 varð 3-0 eftir 83-79 sigur Njarðvíkur í þriðja leiknum. (3) 1996 Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-Keflavík 0-2 varð 1-3 eftir að Njarðvík vann þriðja leikinn 79-74 á heimavelli en Keflavík vann síðan fjórða leikinn 99-74 í Keflavík. (4) 1997 Undanúrsliteinvígi: Grindavík-Njarðvík 2-0 varð 3-0 eftir 121-88 sigur Grindavíkur í þriðja leiknum. (5) Úrsliteinvígi: Keflavík-Grindavík 2-0 varð 3-0 eftir 106-92 sigur Keflavíkur í þriðja leiknum. (6) 1998 Úrsliteinvígi: KR-Njarðvík 0-2 varð 0-3 eftir 94-106 sigur Njarðvíkur í þriðja leiknum á Nesinu. (7) 2001 Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-KR 2-0 varð 3-0 eftir 112-108 sigur Njarðvíkur í framlengdum þriðja leik. (8) Úrsliteinvígi: Njarðvík-Tindastóll 2-0 varð 3-1 eftir að Tinfdastóll vann þriðja leikinn 93-96 í Njarðvík en Njarðvík vann síðan fjórða leikinn 96-71 á Sauðárkróki. (9) 2002 Undanúrsliteinvígi: Njarðvík-KR 2-0 varð ?? (10) Undanúrsliteinvígi: Keflavík-Grindavík 2-0 varð ?? (11)