U14

ALMENNT UM U14 ÆFINGAHÓPA · 2024

KKÍ mun standa fyrir æfingahópum í U14 (áður Afreksbúðir) í ár líkt og síðastliðin sumur. U14 eru undanfari að U15 ára landsliði Íslands sem kallað verður inn til æfinga í desember 2024. Í U14 æfingahópum er það yfirþjálfari ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum. 

U14 æfingahópur í ár eru fyrir ungmenni fædd 2011 og verða haldnar tvær æfingahelgar yfir sumarið. Það eru yfirþjálfararnir sem boða leikmenn til æfinga, en stór hópur leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi um að mæta til æfinga.

Yfirþjálfarar Afreksbúða 2025 er Ólöf Helga Pálsdóttir Wodds hjá stúlkum og Emili Barja & Gunnar Sverisson hjá drengjum. 

Athugið að eingöngu boðaðir leikmenn fengu bréf og eiga að mæta í búðirnar:

U14 æfingabúðirnar verða haldnar á tvem helgum í sumar. Æft verður tvisvar sinnum á dag, laugardag og sunnudag.



FYRIRKOMULAG OG FRAMKVÆMD:

1) Aðkoma iðkenda og foreldrar
Við biðjum foreldra um að virða að áhorf er ekki í boði á meðan æfingar fara fram.

2) Aðkoma næstu æfingahópa
Strákar og stelpur æfa til skiptis báða daga og því fínt að miða við að mæta í íþróttahúsið c.a 15-20 mínútum fyrir upphaf æfingu og verða að vera klárir tímanlega þegar æfingin hefst.

3) Lok æfinga / milli æfinga
Þegar æfingu lýkur fara iðkendur strax út úr íþróttasalnum og nýta annað rými til að nærast og bíða milli æfinga. Hægt er að rölta út í kjörbúðir í næsta nágrenni og/eða vera með nesti með sér.

5) Þátttökugjald og greiðsla
Boðaðir leikmenn greiða í gegnum ABLER forritið og merkja við mætingu.

Þátttökugjald: 7.500 kr. fyrir hvora helgi

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira