29 nóv. 2009Í kvöld fara fram þrír leikir í Iceland Express-deild karla og hefjast þeir allir kl. 19.15. Einn leikur er sýndur í beinni á UMFG.is en það er viðureign Grindavíkur og Snæfells. Einn leikur fer fram í Iceland Express-deild kvenna en þar mætast liðin sem léku til úrslita í fyrra, Haukar og KR. Leikir kvöldsins: Karlar: Grindavík - Snæfell Tindastóll - FSu ÍR - Fjölnir Konur: Haukar - KR