23 ágú. 2026

A-landslið kvenna mætti Portúgal í tveimur vináttuleikjum um helgina. Leikirnir fóru fram í Polidesportivo Rio Maior höllinni sem er staðsett rétt utan við Lissabon. Leikirnir tveir voru kærkominn undirbúningur fyrir landsleikjagluggann í nóvember þegar stelpurnar okkar mæta Írlandi ytra og svo Sviss og Aserbaídsjan hér heima. Þeir leikir eru spilaðir í for-undankeppni EuroBasket 2029.

Báðir leikir töpuðust en liðið græddi heilmikið á verkefninu. Bæði að fá tvo hörkuleiki gegn góðu liði og svo að fá góða æfingaviku saman sem lið áður en liðið flaug saman út. Það verður gaman að fylgjast með liðinu í nóvemberglugganum.


Fyrri leikurinn 21. ágúst 2026:

Portúgal 66 - 53 ÍSLAND 

Stigaskor Íslands:
12 stig - Rebekka Rut Steingrímsdóttir
9 stig - Berglind Katla Hlynsdóttir
8 stig - Danielle Rodriguez
6 stig - Anna Ingunn Svansdóttir
5 stig - Sara Rún Hinriksdóttir
4 stig - Eva Wium Elíasdóttir, Sigrún Björg Ólafsdóttir
3 stig - Emma Theódórsson
2 stig - Kristrún Ríkey Ólafsdóttir

Seinni leikurinn 22. ágúst 2026.

Portúgal 72 - 63 ÍSLAND

Stigaskor Íslands:
15 stig - Sara Rún Hinriksdóttir
14 stig - Rebekka Rut Steingrímsdóttir
11 stig - Danielle Rodriguez 
10 stig - Sigrún Björg Ólafsdóttir
3 stig - Anna Ingunn Svansdóttir, Berglind Katla Hlynsdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir
2 stig - Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, Tinna Guðrún Alexandersdóttir

Landsliðsþjálfarinn Pekka Salminen valdi 14 leikmenn til verkefnisins að þessu sinni og nýtti allan hópinn í báðum leikjunum. 

Áfram ÍSLAND!