22 ágú. 2026Craig Pedersen þjálfari A-landsliðs karla hélt með drengina út til Helsinki síðastliðinn fimmtudag til að spila vináttu- og undirbúningsleik gegn Finnlandi í gær, föstudag. Piltarnir eru að fara í undankeppnisleiki fyrir HM 2027 gegn Serbíu og Tyrklandi í lok mánaðarins og var þessi leikur því góður undirbúningur fyrir þá risaleiki. 

Finnarnir voru sterkari aðilinn og unnu að lokum sannfærandi 93-78 sigur og vonandi fljúga strákarnir okkar vel gíraðir til Belgrad á mánudag. Lauri Markkanen var sterkasti leikmaður Finna með 17 stig.

Vináttuleikur 21. ágúst 2026

Finnland 93 - 78 ÍSLAND

Stigaskor Íslands:
13 stig - Tryggvi Snær Hlinason
12 stig - Kári Jónsson, Kristinn Pálsson, Styrmir Snær Þrastarson
9 stig - Bragi Guðmundsson, Elvar Már Friðriksson
7 stig - Bjarni Guðmann Jónsson 
4 stig - Hilmar Smári Henningsson

Við hlökkum til að sjá leikina gegn Serbum og Tyrkjum.

Ætli þessir ungu herramenn á myndinni verði með?

Áfram ÍSLAND!