9 júl. 2026

U16 ára landslið drengja náði bronsverðlaunum á NM en mótið fór fram í Kisakallio höllinni í Lohja í Finnlandi.

Strákarnir okkar unnu þrjá góða sigra gegn Norðmönnum, Svíum og Finnum og náðu þar með 3.sæti Norðurlandamótsins að þessu sinni. Flottur árangur og við óskum liðinu og aðstandendum innilega til hamingju.

Davíð Breki okkar var svo valinn í úrvalslið Norðurlandamótsins að þessu sinni og óskum við honum til hamingju með þann heiður og þá útnefningu.

Úrslit mótsins:

ÍSLAND 98 - 57 Noregur
ÍSLAND 103 - 76 Svíþjóð
ÍSLAND 78 - 84 Eistland
ÍSLAND 62 - 95 Danmörk
ÍSLAND 71 - 69 Finnland

U16 ára landslið karla skipa:

Arnar Freyr Elvarsson
Árni Atlason
Atli Freyr Haraldsson Katrínarson
Baltasar Torfi Hlynsson
Davíð Breki Antonsson
Hlynur Ingi Finnsson
Jón Breki Sigurðarson
Kormákur Nói Jack
Kristinn Sturluson
Sigurður Karl Guðnason
Sindri Logason
Úlfur Týr Ágústsson

Þjálfari liðsins er Dino Stipcic og honum til aðstoðar eru Sigurður Friðrik Gunnarsson og Ögmundur Árni Sveinsson.
Myndin er fengin að láni frá Ville Vuorinen.