
22 maí 2026
Stjarnan urðu Íslandsmeistarar í 9. flokki stúlkna 15. maí síðastliðinn með sigri á Njarðvík. Stjarnan vann fyrsta leikinn í Ásgarði og tryggðu sér svo titilinn með sigri í öðrum leik sem fór fram í IceMar höllinni. Leikurinn fór 46-66 Stjörnunni í vil. Þjálfarar liðsins eru Hörður Unnsteinsson og Bára Björk Óladóttir.
Embla Hrönn Amlin Sigurðardóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17,3 stigum, 8,3 fráköstum og 2,3 stoðsendingum.
Til hamingju Stjarnan!


