/KKI%20logo%20-%20net%20-%20minni.png)
27 ágú. 2025
Laugardaginn 13. september 2025 stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið fer fram á íslensku en er opið öllum.
SKRÁNING HÉR
Námskeiðið hefst kl. 9:00 og stendur fram til kl. 17:00. Allir þátttakendur ljúka námskeiði sem dómarar og geta, hafi viðkomandi áhuga á því, farið á niðurröðun dómaranefndar. Boðið verður upp á hádegismat.
Þátttakendur þurfa að mæta með tölvu eða spjaldtölvu á námskeiðið.
Efni námskeiðsins snýr að grunni í dómgæslu, s.s. leikreglum og staðsetningu á leikvelli.
Ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi námskeiðið, sendu okkur þá póst á kki@kki.is.
Skráning stendur til fimmtudagsins 11. september 2025.