23 jún. 2025

Riðlakeppni EuroBasket kvenna er lokið og ljóst hvaða lið mætast í 8 liða úrslitum mótsins en þau verða spiluð á þriðjudag og miðvikudag. Á þriðjudaginn mætast Frakkland-Lithaen og Ítalía-Tyrkland, á miðvikudaginn Spánn-Tékkland og Belgía-Þýskaland. 8 liða úrslitin ásamt undanúrslitum og úrslitum fara fram í Piraeus í Grikklandi.

Stelpurnar okkar voru með Tyrklandi í riðli í undankeppni mótsins.

Belgar eru núverandi Evrópumeistarar, sunnudagskvöldið 29. júní verða nýjir Evrópumeistarar krýndir.