7 ágú. 2024

Á morgun fimmtudag 8. ágúst er komið að því fyrir U16 ára strákanna okkar að hefja leik í B-deild U16 EuroBasket yngri landsliða. Mótið fram fer í Skopje í Norður-Makedóníu og mæta stákarnir okkar Svartfjallalandi í fyrsta leik kl.14:00 að íslenskum tíma. Mótinu lýkur laugardaginn 17. ágúst.

 

22 þjóðir taka þátt í B-deildinni í fjórum riðlum, strákarnir okkar eru í riðli með Svartfjallalandi, Hollandi, Luxembourg, Tékklandi og Kýpur. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1-8, 9-16 og 17-2246 þjóðir taka þátt í U16 EuroBasket drengja , 16 þjóðir er í A-deild,  22 þjóðir í B-deild og 8 þjóðir í C-deild

 

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U16 EuroBasket B-division:

https://www.fiba.basketball/en/events/fiba-u16-eurobasket-2024-division-b

 

 

Myndir og fréttir frá liðinu munu einnig koma á samfélagsmiðla KKÍ á meðan mótinu stendur.

 

Emil Barja þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

"Góð stemning er í hópnum fyrir Evrópumótið. Eftir að hafa endað í öðru sæti á Norðurlandamótinu þá er markmiðið  að enda í efstu tveimur sætum í riðlinum okkar og spila í 8 liða úrslitum. Við þekkjum lítið hin liðin sem eru með okkur í riðli en við erum tilbúnir í allar áskoranir.

Æfingar hafa gengið vel og hafa strákarnir lagt mikla vinnu í að bæta liðið og verða betri eftir NM.

 

Það eru þrjár breytingar á hópnum okkar. Daði Steinn þurfti því miður að stíga út úr þjálfarateyminu vegna persónulegra ástæðna en hans verður sárt saknað. Pétur Már er kominn inn í þjálfarateymið en hann hefur mikla reynslu úr Evrópukeppnum og hefur haldið u20 karlaliðinu uppi í A-deild síðustu tvö ár.

Tvær breytingar eru á leikmannahópnum en Viktor Máni Ólafsson kemur inn aftur eftir meiðsli og Logi Smárason kemur einnig inn. Þeir koma inn fyrir Bjarna Jóhann Halldórsson og Hannes Gunnlaugsson."

 

 

 

U16 drengja er skipaði eftirtöldum leikmönnum á EM

 

Jakob Kári Leifsson

Stjarnan

Marinó Gregers Oddgeirsson

Stjarnan

Patrik Joe Birmingham

Njarðvík

Róbert Nói Óskarsson

Lake Highland Prep, USA

Bóas Orri Unnarsson

1939 Can­ari­as, Spánn

Leó Steinsen

BK Höken, Svíþjóð

Sturla Böðvarsson

Snæfell

Jón Árni Gylfason

Skallagrímur

Pétur Harðarson

Stjarnan

Jökull Ólafsson

Keflavík

Viktor Máni Ólafsson

Stjarnan

Logi Smárason

Laugdælir

 

Þjálfari: Emil Barja

Aðstoðarþjálfari: Pétur Már Sigurðsson

Aðstoðarþjálfari: Gunnar Sverrisson

FIBA dómari: Bjarki Þór Davíðsson

Sjúkraþjálfari: Valdimar Halldórsson