30 maí 2024

Valur er Íslandsmeistari í Subway deild karla árið 2024. Einvígið byrjaði með sigri Vals á heimavelli og svo skiptust liðin á að sigra heimaleikina sína þannig að knúa þurfti fram oddaleik sem fór fram í N1 höllinni að Hlíðarenda í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi en endaði 80-73 Val í vil.

Taiwo Badmus var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skoraði 31 stig í leiknum í gær ásamt því að vera með 14 fráköst.

Til hamingju Valur!