29 maí 2024

Breiðablik varð Íslandsmeistari í Ungmennaflokki karla 24.maí síðastliðinn með sigri á Haukum. Breiðablik unnu fyrsta leikinn í Smáranum og tryggðu sér svo titilinn með sigrí í öðrum leik sem fór fram á Ásvöllum. Leikurinn fór 96-110 Breiðablik í vil. Þjálfari liðsins er Ívar Ásgrímsson.

Sölvi Ólason var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 26,5 stigum, 2,5 fráköstum og 2,5 stoðsendingum.

Til hamingju Breiðablik!