24 maí 2024

Stjarnan varð Íslandsmeistari í 11. flokki drengja 23.maí síðastliðinn með sigri á Breiðablik. Stjarnan sigraði fyrsta leikinn í Umhyggjuhöllinni en Breiðablik sigraði síðan síðari leikinn sem fór fram í Smáranum. Þannig að knúa þurfti fram oddaleik sem fór fram í Umhyggjuhöllinni en leikurinn endaði 84-75 Stjörnunni í vil. Þjálfari liðsins er Ingi Þór Steinþórsson.

Atli Hjartarson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 18,3 stigum, 7,3 fráköstum og 2,6 stoðsendingum.

Til hamingju Stjarnan!