24 maí 2024

KKÍ hefur skrifað undir nýjan samstarfssamning við Sýn sem þýðir að íslenskur körfubolti verður sýndur áfram á Stöð 2 Sport.
Samstarfið hefur verið farsælt og hróður íslensks körfubolta vaxið mikið síðustu ár, er þar ekki síst að þakka öflugri þáttagerð og umgjörð hjá Stöð 2 sport ásamt öflugu starfi aðildarfélaga KKÍ. 

Það var árið 1995 sem íslenskur körfubolti var tekinn til sýninga hjá Stöð 2 sport sem á þeim tíma hét Sýn. Við fögnum því að ná samningum sem styrkja íslenskan körfubolta og tryggir það að körfuboltaveislan verður áfram í besta sætinu og næsta keppnistímabil verður því það þrítugasta í sögunni á Stöð2 Sport.