24 maí 2024

Haukar varð Íslandsmeistari í 12. flokki karla 21.maí síðastliðinn með sigri á Stjörnunni. Stjarnan unnu fyrsta leikinn á Ásvöllum en Haukar sigruðu síðan síðari leikinn sem fór fram í Umhyggjuhöllinni. Þannig að knúa þurfti fram oddaleik sem fór fram á Ásvöllum en leikurinn endaði 86-76 Haukum í vil. Þjálfari liðsins er Friðrik Hrafn Jóhannsson.

Hilmar Arnarson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 27,3 stigum, 4,3 fráköstum og 4,6 stoðsendingum.

Til hamingju Haukar!