24 maí 2024

Fjölnir varð Íslandsmeistari í 9. flokki stúlkna 21.maí síðastliðinn með sigri á Stjörnunni. Stjarnan unnu fyrsta leikinn sem fram fór í Umhyggjuhöllinni en Fjölnir sigraði síðan síðari leikinn sem fór fram í Dalhúsum. Þannig að knúa þurfti fram oddaleik sem fór fram í Umhyggjuhöllinni. Um æsispennandi leik var að ræða sem endaði með naumum sigri Fjölnis 71-73. Þjálfari liðsins er Lewis Diankulu.

Elín Heiða Hermannsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði að meðaltali 17,3 stigum, 6 fráköstum og 3,3 stoðsendingum.

Til hamingju Fjölnir!